Þróun á íslensku doulustarfi- spennandi Erasmus+verkefni
Það eru ótrúlega spennandi tímar framundan hjá okkur í þróun og evrópsku samstarfi hjá doula.is. Við sóttumst eftir því að auka samvinnu við MaterLua, doulusamtök í Portugal og hlutum styrk hjá Erasmus plús til að fylgja því eftir. Verkefnið snýr að sjálfbærri þróun doulustarfs í Evrópu og að útbúa fræðsluefni fyrir doulur sem sinna fjölskyldum með ólíkan menningarbakgrunn.
Verkefnið er í raun tvennskonar, annarsvegar útbúum við handbók fyrir doulur um menningarnæmi í doulustarfi og ætti að nýtast doulum víða í Evrópu. Hinn hluti verkefnins snýr að því að þróa og efla námsefni um faglega þróun og sjálfbærni í starfi.
Það er ekki síður spennandi að hluti verkefnisins felur í sér gagnkvæmar námsferðir milli Íslands og Portúgals. Við erum spenntar fyrir því að fara í námsferðir, til að sjá hvernig Portúgalskar doulur starfa, hvernig umhverfið þeirra er og vinna saman að verkefnunum.
Við reiknum með að verkefnið taki allt að tvö ár og erum strax byrjaðar að leggja grunninn að uppbyggingu og framvindu. Við hlökkum mikið til að deila ferðalaginu með ykkur og segja frá verkefninu, samstarfinu og því sem verður til á leiðinni.
