top of page

Svefn fyrsta árið

Svefn eða kannski má segja svefnleysi er eitthvað sem foreldrar spá eðlilega mikið í fyrsta ár barnsins. Margir foreldrar taka eftir því að þeir sofa minna, slitnar og svo ekki síst tekur tíma að finna út úr því hvernig maður kemur barninu í svefn og búa til nýjan svefnrytma fyrir nýju fjölskylduna.

Fyrstu mánuði barnsins er best ef það sefur í nálægð við foreldra, þannig er hægt að sinna því án mikillar fyrirhafnar og maður heyrir í krílunum þegar þau kalla á mann og rumska.


Nokkur atriði sem mikilvægt er að hafa í huga varðandi svefnstaðinn:

  • passa að hafa ekki of heitt í herberginu

  • hafa jafnvægi í fötum, yfirbreiðslu og hita í herbergi

  • Ekki nota kodda fyrsta árið

  • Ekki stuðkanta eða mjúk dýr í rúminu/vöggunni fyrstu mánuðina

  • Barn ætti alltaf að vera lagt á bakið til hvílu amk þar til það getur snúið sér á alla kanta sjálft.

Ef barn sefur upp í hjá foreldrunum er mikilvægt að hafa í huga:

  • barnið ætti aðeins að deila rúmi með þeim sem annast barnið sem er alla jafna bara foreldrar

  • foreldrar eru í góðu standi, hafa ekki neytt áfengis, reykja ekki og taka ekki lyf sem skerða getu þeirra til að bregðast við barni á nokkurn hátt.

  • gæta þess að barnið geti hvergi dottið fram úr eða fest einhversstaðar á milli.

  • Ekki koddi fyrsta árið

  • Sérábreiða fyrir barn


Fyrstu mánuði barnsins er í raun engin sérstök svefnrútína hjá börnum, þau sofa þegar þau eru þreytt og södd og búin að leika. Gott er að hafa í huga að búa til góðar venjur sem sagt endurtakningu með barninu þar sem fyrirsjáanleiki er í daglegu lífi. Það hjálpar foreldrum ekki síst að viðhalda eigin rútínu og hjálpar til við að skapa góðar svefnvenjur til frambúðar.

32 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page