top of page

Doulunám 2027

ferðalag inn í stuðningshlutverk í fæðingu.

UpcomingJan 31, 2027 - Sep 25, 2027
159,000 Icelandic krónur
Suðurgata

Available spots


Þjónustulýsing

Doulunám 2027 er einstakt tækifæri til að læra að styðja við foreldra á meðgöngu, í fæðingu og fyrstu vikurnar í foreldrahlutverkinu. Námið fer ítarlega í hlutverk doulu og veitir innsýn í líkamlega, andlega og tilfinningalega umönnun. Þátttakendur fá þekkingu og verkfæri til að verða traustir stuðningsaðilar á einu mikilvægasta tímabili lífsins. Námið hentar bæði þeim sem vilja starfa sem doulur og þeim sem vilja dýpka skilning sinn á meðgöngu og fæðingu. Vertu hluti af umönnunarbyltingunni og lærðu að veita ómetanlegan stuðning, að vera til staðar fyrir þau sem eru að taka sín fyrstu skref í foreldrahlutverkinu. Námsdagar 2027: 31. janúar kl. 9–16 19.–21. febrúar kl. 17–21 / 9–16 18.mars 17-21 19. mars kl. 17–21 15. apríl kl. 17–21 1.–2. maí kl. 9–16 25. september kl. 9–16 Staðsetning: Lífsgæðasetur St. Jó., Suðurgötu 41, Hafnarfirði. Innifalið í náminu eru allir námsdagar, bók um fæðingarstuðning, handleiðsla eftir að námsdögum lýkur, fræðslubæklingur á íslensku og aðild að Doulusamtökum Íslands í 2 ár. Námsgjald er 159.000 kr. og hægt er að dreifa greiðslum á allt að fjóra greiðsluhluta.


Nánari upplýsingar

  • Suðurgata 41, Hafnarfjordur, Iceland

    +3548624804

    soffia@hondihond.is


Hönd í hönd ráðgjöf ehf
kt: 6708200760
        payment terms

bottom of page