top of page

Smáatriði sem eru næs í fæðingu

Það er ekki alltaf auðvelt að vera sá sem stendur á hliðarlínunni, vill vera til staðar, gera gagn en vera frekar hjálparvana á sama tíma.

Hér eru fimm hugmyndir sem geta gert fæðinguna aðeins betri.


Vertu með puttann á púlsinum með hvað er að gerast, spurðu spurninga, fylgstu með og spjallaðu ef það er stemning fyrir því. Ekki missa niður peppið þegar það á við.


Dimmt herbergi og engin klukka í augnsýn getur gefið mikla hugarró.


Hafðu góða tónlist tilbúna, eitthvað sem þið eruð vön að hlusta á og svo líka eitthvað sem er hlutlaust og gott að hafa í bakgrunninum.


Varasalvi er oft þarfaþing


Bjóddu fram hönd til að halda í, það getur verið gott að hafa smá snertingu og finna öryggi af því að manneskja standi nálægt manni.




Hönd í hönd ráðgjöf ehf
kt: 6708200760
        payment terms

bottom of page