top of page

Latent fasi í fæðingu


Latent fasi er í raun upphaf fæðingar, sumir vilja kalla það forstig fæðingar eða undirbúningstímabil fyrir fæðingu. Þetta stig fæðingar getur verið mjög stutt þanngig að konur taka varla eftir því yfir í að taka nokkrar klukkustundir og því miður stundum nokkra daga. Þetta er alveg mikilvægt tímabil, mikill undirbúningur í líkamanum en getur verið mjög þreytandi og reynt mikið á og tekið orku.


Flestir finna fyrir einhverri tilfinningu í líkamanum, getur verið smá túrverkir, jafnvel nokkuð öflugir og eru mislangir og missterkir eða þannig að þeir eru reglulegir og detta svo niður. Stundum eru verkir í bakinu og erfitt að hvílast og litla hugarró að fá.


Þetta er eðlilegt en þreytandi og getur líka gert mann óöruggan, og eðlilegt að velta fyrir sér hvort fæðingin sé byrjuð, hvort maður þurfi að heyra í einhverjum eða fara á fæðingarstað.

Það er eðlilegt að finna fyrir spennu og tilhlökkun og öllum tilfinningum, sérstaklega þegar maður á von á fyrsta barni og er ekki alveg 100% á því við hverju megi búast. Mikilvægast er að muna að það er hellingur í gangi í líkamanum sem skilar sér þegar á reynir og engu er sóað.

Það getur verið erfitt að halda ró og vera heima en oftast er það það besta sem hægt er að gera í stöðunni. Á þessum tímapunkti er oftast betra að hugsa að láta tímann líða, spara orkuna sína og láta þetta tímabil líða svona eins og maður sé að hunsa það. Ég veit þetta er eiginlega ómögulegt ráð en það er samt eitthvað sem kemur að gagni. Finna það sem er að gerast, ef það er kvöld eða nótt, reyna að hvílast hvernig sem maður gerir það, athuga hvort maður geti sofnað eða komið sér vel fyrir þannig að tíminn líði aðeins og maður gleymi sér, hlusta á bók eða tónlist, horfa eða eitthvað þannig. Ef maður finnur fyrir þessu að degi til að hafa eitthvað passlega öflugt fyrir stafni, ganga frá, fara í göngutúr, fara í sturtu, spila, horfa, hlusta á tónlist eða hvað það er sem manni finnst notalegt að gera.


Getur verið gott að gera heimilið kósý með því að dempa ljósin en hafa í huga að kannski verður þetta tímabil mjög langt og að maður er í raun ekki að bíða eftir því að fæðingin sé byrjuð heldur meira byrjaður rólega í fæðingu og fyrsti spretturinn er langur. Við bjóðum fólki í þessum fasa upp á að koma í vitjun til þeirra með nokkuð stuttum fyrirvara til að hjálpa fólki að komast í ró, finna út hvað er hægt að gera og hjálpum til við að finna hvað hjálpar í stöðunni og komum með hugmyndir að stöðum, stellingum, nuddi og erum yfirleitt með rebozo-ið mjög nálægt.

Ekki hika við að senda okkur línu á soffia@hondihond.is og við finnum tíma til að aðstoða ykkur að gera latent fasann að ánægjulegum tíma.


 
 

Recent Posts

See All
Önnur doulunámshelgin

Önnur douluhelgin í framhaldsnáminu sem er gert í samvinnu við Króatísku doulusamtökin, fyrir tilstuðlan Erasmus+ Douluhelgin í...

 
 

Hönd í hönd ráðgjöf ehf
kt: 6708200760
        payment terms

bottom of page